Hér má sjá stuttan grínferil minn og ýmsar upplýsingar.
Jónas Reynir Gunnarsson, grínisti, myndasöguhöfundur, leikskáld og fiskverkunartæknir (hausaþurrkun).
fæddur 1987 í Reykjavík
Uppistand.
Ég hef mikinn áhuga á uppistandi og hef ásamt vinum mínum verið að skipuleggja uppistandskvöld á Egilsstöðum. Ég hef ekki komið oft fram en hlakka til að vinna með og þróa efnið mitt.
Ég hef komið fram á:
Kaffihúsakvöldi í ME - febrúar 2006
Uppistandskvöldi í Vegahúsinu - apríl 2006
Uppistandskvöldi í Vegahúsinu - júlí 2006
Nemendafélagskynning í ME - september 2006
Börnin heim sýning á Svarthvítu Hetjunni - desember 2006
Kaffihúsakvöld í ME - febrúar 2007
Fyndnasti maður Íslands í Austurbæjarbíó - mars 2007 (Sýnt á Skjá-einum)
Uppistandskvöldi í Sláturhúsinu - apríl 2007
Annað (leiklist, myndasögur, internet).
Samdi leikrit ásamt Hjalta Jóni Sverrissyni. Ég skrifaði handritið og hann lögin og textana að þeim. Leikritið heitir Súper Maríó og var sett upp af Leikfélagi Menntaskólans á Egilsstöðum í feb-mars 2007.
Er búinn að vera að gera myndasöguna Arthúr ásamt Finni Torfa Gunnarssyni síðan í ágúst 2005. Hún var birt í blaðinu Sirkus 2006 og birtist núna í DV. Bókaútgáfan Skrudda gaf út fyrstu bók okkar í nóvember 2006, en hún innihélt fyrstu 50 strípurnar ásamt stuttum kafla um þróun sögunnar. Við seljum boli og bolla fyrir harða aðdáendur.
Árið 2005 var ég tilnefndur til íslensku vefverðlaunanna í flokknum „Besta einstaklingssíðan“ fyrir heimasíðuna mína http://www.fjandinn.com/jonni
Þessa stundina er í vinnslu ný uppistands-heimasíða.
Ég og Hjalti Jón Sverrisson vorum með hljóðsketsa í ungmennafélagsþætti Ívars Péturs á Rás 2 frá 2005-2006.
Ég hef gert ótal sketsa og hef mikinn áhuga á kvikmynda- og sjónvarpsþáttagerð. Hef verið að vinna í ýmsum hugmyndum og handritum að gamanþáttum í gegnum tíðina.
Hlutir sem mér líkar:
Uppáhalds uppistandararnir mínir eru:
George Carlin
Woody Allen
Steve Martin
Steven Wright
Demetri Martin
Bill Hicks
Richard Pryor
Einnig líkar mér við: Eddie Murphy, Eddie Izzard, Chris Rock, Jerry Seinfeld og Ricky Gervais.
Af íslensku dóti höfðu Fóstbræður og Tvíhöfði mikil áhrif á mig þegar ég var að alast upp.