10. ágúst 2006 klukkan 21:46
Skólinn byrjar eftir 13 daga. Bestu vinir mínir eru að fara í burtu og kveðjupartý verður víst haldið á morgun býst ég við já.
Ég veit ekkert með hverjum ég á að fara í skólann fyrsta daginn, ég veit ekkert hverjum ég geng upp að þegar ég fer inn í sal eða hverjum ég hangi með þegar ég er búinn að fá stundatöfluna. Ég veit ekki um neinn vina minna sem er eftir sem er með mig á top1-3 yfir að hringja í til að gera eitthvað eða fara á einhvern atburð.
Hvað á ég að gera eftir skóla?
OHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHH
Ég er með kökkinn í hálsinum.