Auglýsing

Veđriđ

16. nóvember 2006 klukkan 18:53
Er slæmt.
Jónas Reynir Gunnarsson

Studio 60 on the Sunset Strip

08. nóvember 2006 klukkan 16:48
Ég hef verið að horfa á þátt þar sem Matthew Perry leikur aðalhandritshöfund á sketsaþætti, er trúleysingi og notar Powerbook. Hvernig getur mér ekki líkað við þennan þátt?
Jónas Reynir Gunnarsson

Alveg ađ koma

01. nóvember 2006 klukkan 04:51


I like, it is nice.

Btw ég var að komast að því leikstjóri þessarar myndar er enginn annar en Larry Charles, en hann skrifaði marga góða Seinfeld þætti á sínum tíma og er ég mjög hrifinn af kauða.
Jónas Reynir Gunnarsson

Hommar í Fćreyjum

31. október 2006 klukkan 06:09
Jónas Reynir Gunnarsson

Pirr

30. október 2006 klukkan 17:23
Það hefur komið nokkrum sinnum fyrir að ég hef verið spurður “ætlarðu að skila fermingargjöfunum þínum?” í skólanum. Þetta er líklega vegna þess að ég bauðst til að hjálpa þeim sem eru ekki rétt skráðir í trúfélög með skriffinskuna.
Þar sem rökin hafi ekki verið meiri eða betri en “ætlarðu að skila fermingargjöfunum þínum?” verð ég að fylla inn í eyðurnar og gera ráð fyrir að þessir sem spyrja mig að þessu halda að ég hafi verið trúlaus þegar ég fermdist og svikið gjafir út úr ættingjum mínum.
Þegar ég fermdist þá trúði ég á guð. Ég var að verða 14 ára gamall og alinn upp við kristni allt mitt líf. Ég er ekki hissa að ég hafi fermst, það einhvern veginn bjóst enginn við neinu öðru, það gerðu allir ráð fyrir því að maður myndi fermast. Ég tel mig ekki hafa haft nægan þroska til að taka þessa ákvörðun á þessum tíma.
Hins vegar held ég að mjög stór hluti þeirra sem fermist trúi ekki miklu af því sem þeir segja í trúarjátningunni. Þessir sem ætlast til þess að ég skili fermingargjöfunum mínum ættu kannski að eltast við alla þá sem sögðust trúa trúarjátningunni en gera það ekki.
Hér er áhugaverð blogfærsla um fermingar. Ef þið ætlið svo að þykjast vera það kristin og sanntrúuð að gagnrýna mig fyrir að fermast reynið að minnsta kosti að vita eitthvað um hvað þið eruð að tala.

Jónas Reynir Gunnarsson

Einhvern daginn

26. október 2006 klukkan 04:38
"Nú er svo bara að vona að trúarleg og pólitísk geðveiki aukist enn meira svo þessi vitlausa dýrategund fari að kála sér." - Dr. Gunni, 2006.

Þessi hugsun fór í gegnum hausinn á mér þegar ég horfði á þessar óþolandi kellingarnar þarna í Amazing Race.

Vá, farið heim.
Jónas Reynir Gunnarsson

Parketrenn

24. október 2006 klukkan 02:43
Leiðindaráminning um það hvað langt sé í að ég verði fullorðinn er að þegar ég ferðast um parketið á heimili mínu þá reyni ég alltaf að ná smá hraða og læt mig renna í stað þess að hægja bara á mér. Ullarsokkar eru líka mjög hentugir til þess.
Jónas Reynir Gunnarsson

Emo (ATH. slangur)

21. október 2006 klukkan 23:18
Ég verð að taka undir með Ástu Emódruslu og viðurkenna það að ég er algjört emo.

Svona líður mér:

That is one crazy emo monkey

Jebb, maður er orðinn emo.
Jónas Reynir Gunnarsson

Fuck it

20. október 2006 klukkan 05:11
Jónas Reynir Gunnarsson

Woody Allen

19. október 2006 klukkan 03:48
Ég vildi að ég væri jafn góður og Woody Allen. Að hlusta á uppistöndin hans er eins og að hlusta á sinfoníur eða eitthvað, þetta er svo fallega gert, uppbyggt og framkvæmt. Hann er snillingur.

"(a) Socrates is a man. (b) All men are mortal. (c) All men are Socrates."

"Money is better than poverty, if only for financial reasons."

"If only God would give me some clear sign! Like making a large deposit in my name in a Swiss bank."

"It's not that I'm afraid to die, I just don't want to be there when it happens."

"What if nothing exists and we're all in somebody's dream? Or what's worse, what if only that fat guy in the third row exists?"

"Life is divided into the horrible and the miserable."


Jónas Reynir Gunnarsson

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...