Auglýsing

Bill Hicks

16. febrúar 2007 klukkan 17:06
Horfði í gær á heimildarmynd í átta hlutum um grínistann Bill Hicks.

Fyrir ykkur sem þekkja ekki til hans læt ég fylgja með uppistandsbrot:



Þetta er úr síðasta uppistandinu hans sem til er á teipi. Ég á það á mp3 og það er einnig hægt að horfa á það á youtube (það tilheyrir líka heimildarmyndinni).

Annars er ég að reyna að eyða þessum frídegi í að undirbúa stutt uppistand sem ég verð með eftir viku á kaffihúsakvöldi opnu daga ME. Þar kom ég líka fram í fyrsta skiptið í fyrra.
Jónas Reynir Gunnarsson
Pétur skrifar ...
 
Virkilega góð heimildarmynd fyrir áhugamenn um grín, pólutík og aðra sprellara. Einn flottasti grínisti allra tíma, algjör fokking rokkari! Væri gaman að heyra hans sjónarmið á öllu sem er í gangi í dag, eeeeeeeeeen.. við verðum bara að halda áfram arfleið hans, með misnotkun á eiturlyfjum og gagnrýnni hugsun.
17. febrúar 2007 klukkan 19:41
Eyvindur skrifar ...
Já, þessi heimildamynd er æðisleg. Hef átt hana á VCD í nokkur ár og horfi reglulega á hana. Þess ber að geta fyrir áhugasama að ég skrifaði BA ritgerð um Bill Hicks undir heitinu „Frelsi til að hlýða: Bill Hicks og samfélagið.“ Hana er að finna í þjóðarbókhlöðunni, eða þá að fólk getur haft samband við mig ;) ...

Hins vegar vil ég leiðrétta þig með eitt: Þetta er ekki síðasta uppistandið sem Hicks flutti. Þetta er bara það síðasta sem er til á teipi. Þetta er útbreiddur misskilningur. Síðasta uppistandið hans var nokkrum vikum eða mánuðum síðar og hann var orðinn mjög veikur þá. Það var tekið upp, en aðstandendur hans forðuðu spólunni frá því að koma fyrir augu almennings (kannski sem betur fer; ég veit ekki hvort ég myndi treysta mér til að sjá það).

Sorrý, ég á erfitt með að hemja mig þegar kemur að Bill Hicks. En á móti kemur að ég er mikill viskubrunnur um meistarann. Ask me anything ;)
04. mars 2007 klukkan 15:22
Jónas Reynir skrifar ...
Takk fyrir þetta, þetta hefur verið leiðrétt. Bill Hicks var meistari mikill.
05. mars 2007 klukkan 10:24

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...