Auglýsing

Pearl the landlord

21. apríl 2007 klukkan 22:42
Finnur benti mér á fyndið video:

Jónas Reynir Gunnarsson

Steve Martin heimildarmynd

18. apríl 2007 klukkan 11:21
Fann smá heimildarmynd um Steve Martin á Youtube. Það vantar eitthvað aftan á hana, en það hlýtur að koma bráðlega. Ég mun linka á það þá.



Hluti 2
Hluti 3
Jónas Reynir Gunnarsson

Latur - ný síða

09. apríl 2007 klukkan 00:38
Margt búið að gerast síðan ég blogaði síðast, ég er mjög latur að segja frá persónulegu lífi mínu.
Héldum uppistand miðvikudaginn 4. apríl í fyrsta sinn í Sláturhúsinu, sem heppnaðist mjög vel. Ef litið er yfir nýjustu færslurnar á bloginu mínu sést að þetta er eiginlega allt um grín eða uppistand. Þess vegna er í vinnslu ný fjandinn.com síða, en það mun verða fyrst og fremst síða tengd uppistandi, með fréttakerfi, vídjóum o.fl o.fl. Hlakka fjandi mikið til þegar hún verður ready. Þá mun ég skrifa um uppistandara sem ég hef skrifað hérna á síðuna og einhverja fleiri + fréttir af uppistandi hérna og erlendis o.fl. atburðir og einhver skítur.
Það verður MAGNAÐ.

Talandi um uppistandsfréttir; Þórhallur vann Fyndnasta mann Íslands, til hammara með það.
Jónas Reynir Gunnarsson

Demetri Martin: Person

22. mars 2007 klukkan 12:12
Hér er uppistandið "Person" með Demetri Martin. Ég dánlódaði "Comedy Central Presents: Demetri Martin" um daginn og það var mjög fyndið. Person er jafnvel ennþá betra, maðurinn er mjög sniðugt helvíti.
Ég myndi drífa mig að horfa á þetta áður en þetta verður tekið út eins og svo oft gerist. Látið þetta bara hlaðast yfir daginn og horfið á þetta í kvöld. Þetta var allavega lengi að hlaðast hjá mér.
Ég mæli með að horfa á þetta allt, en ekki hætta ef þið fílið ekki fyrstu 5 mínúturnar. Hann gerir alltaf nýja og mismunandi hluti og verður bara betri og betri.
Ég dánlódaði líka "These are jokes" sem er hljóðuppistandsdiskur sem hann hefur gefið út.
Gott stöff, gott stöff.
Jónas Reynir Gunnarsson

FMÍ S1

17. mars 2007 klukkan 19:08
FMÍ þátturinn sem ég var í var sýndur í gær á nákvæmlega sama tíma og Gettu Betur, þannig að ef einhverjum langar að sjá þetta þá er þetta endursýnt í nótt kl korter í 2 (á skjáeinum).
Ég er bara nokkuð sáttur.
Jónas Reynir Gunnarsson

Steven Wright

11. mars 2007 klukkan 15:46
Bandaríski grínistinn Steven Wright er jafn einstakur og hann er fyndinn. Þessi skrítni maður þrusar út úr sér "one-linerum" eins og hann fái borgað fyrir það. Hann fær það líklega. Hann er líka bara með snjalla og fyndna brandara.


„I almost had a psychic girlfriend but she left me before we met.“

„42.7% of all statistics are made up on the spot.“

- Steven Wright

Svo er meira til á youtube.
Jónas Reynir Gunnarsson

FMÍ - the end

09. mars 2007 klukkan 15:30
Uppistandið mitt er svona eins og gamall, skítugur, heimilislaus maður, sem hleypur að þér og öskrar eitthvað óskiljanlegt. Þú annað hvort hlærð að honum eða þá hræðist hann og veist ekki alveg hvernig þú átt að láta.
Ég er semsagt ekki alveg nógu sáttur við hvernig þetta fór hjá mér, en þetta var alveg ágætt. Hef það ekki alveg í mér að „ná“ áhorfendum. Allavega ekki ennþá. Það var samt alveg eitthvað hlegið og þið getið horft á þetta í sjónvarpinu eftir viku. Magnað að vera með uppistönd fyrir svona stórt krád og á svona flottum stað.
Jónas Reynir Gunnarsson

Fyndnasti maður Íslands

05. mars 2007 klukkan 10:27
Ég fer til Reykjavíkur á fimmtudaginn til að taka þátt í fyndnasta manni Íslands . Endilega kíkið ef þið getið. Svo flýg ég heim á föstudaginn, fer á Barkann og horfi svo á Hákon í FMÍ á S1 . Kíkið á það líka.
Jónas Reynir Gunnarsson

FMÍ

28. febrúar 2007 klukkan 10:09
Jónas Reynir Gunnarsson

Bill Hicks

16. febrúar 2007 klukkan 17:06
Horfði í gær á heimildarmynd í átta hlutum um grínistann Bill Hicks.

Fyrir ykkur sem þekkja ekki til hans læt ég fylgja með uppistandsbrot:



Þetta er úr síðasta uppistandinu hans sem til er á teipi. Ég á það á mp3 og það er einnig hægt að horfa á það á youtube (það tilheyrir líka heimildarmyndinni).

Annars er ég að reyna að eyða þessum frídegi í að undirbúa stutt uppistand sem ég verð með eftir viku á kaffihúsakvöldi opnu daga ME. Þar kom ég líka fram í fyrsta skiptið í fyrra.
Jónas Reynir Gunnarsson

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...